
Sauðkind og safnkostur
Íslenska sauðkindin þykir harðgerð enda hefur hún aðlagað sig vel að erfiðum aðstæðum hér á landi. Landsmenn hafa í gegnum tíðina lært að nýta hana til hins ýtrasta og spilaði hún stórt hlutverk í því að halda lífi í þjóðinni. Ull og skinn voru notuð í klæði og skófatnað og úr hornum smíðuðu menn spæni og hagldir. Upp á völur og leggi var undinn þráður og bein og horn voru leikföng barna. Tóbakspungar, buddur fyrir aura og annað smádót var unnið úr hrútspungum. Á sýningunni Saukind og safnkostur gefur að líta muni úr safnkosti Minjasafns Austurlands sem hægt væri tengja við sauðkindina á einn eða annan hátt.