Hvatningarverðlaun til listnema
Haukssjóður, minningarsjóður um Hauk Stefánsson, listmálara, veitti á dögunum nemanda sem útskrifaðist af listnámsbraut Menntaskólans á Egilsstöðum hvatningarverðlaun sjóðsins.
Sjóðurinn er í umsjá Minjasafns Austurlands og Bókasafns Héraðsbúa.
Haukur Stefánsson fæddist árið 1901 á Rjúpnafelli í Vopnafirði. Ungur sigldi hann með móður sinni til Vesturheims og eyddi þar uppvaxtarárum sínum og stundaði myndlistarnám í Winnipeg og Chicago. Árið 1932 flutti hann aftur heim til Íslands ásamt eiginkonu sinni, Ástríði Jósefsdóttur sem hann hafði kynnst þegar hann heimsótti föðurlandið árið 1930 í tilefni Alþingishátíðarinnar. Þau hjón settust að á Akureyri þar sem hann lagði stund á húsamálun og teiknikennslu auk listmálunnar. Haukur lést árið 1953.
Árið 1996 stofnaði fjölskylda Hauks svokallaðan Haukssjóð sem var ætlað að efla myndlist á Austurlandi með viðurkenningum og bókagjöfum og voru forstöðumenn Minjasafnsins og Bókasafns Héraðbúa skipaðir umsjónarmenn sjóðsins. Í samræmi við markmið sjóðsins var ákveðið að gefa nemendum sem útskrifast af listnámsbraut Menntaskólans á Egilsstöðum eintak af bókinni Haukur Stefánsson sem gefin var út í tengslum við sýningu á verkum hans í Listasafninu á Akureyri. Gjöfin er hugsuð sem hvatning til að halda áfram göngu eftir stígum listarinnar.
Að þessu sinni útskrifaðist einn nemandi af listnámsbraut, Hrafnhildur Halldórsdóttir. Haukssjóður óskar henni og öðrum stúdentum til hamingju með áfangann.
Mynd: www.me.is