Skip to main content

Ný sýning: Verbúðarlíf

17. október 2017

Það verða „blóðugir fingur og illa lyktandi tær“ á Minjasafni Austurlands á Dögum myrkurs þegar sýningin Verbúðarlíf verður opnuð í sýningarsal safnsins.

Fjölmargir Íslendingar kynntust verbúðalífi og verbúðaflakki um og upp úr miðri síðustu öld. Peningalyktin barst úr sjávarplássunum og þangað streymdi unga fólkið, laust og liðugt, í von um skjótan gróða. Sumir sáu í fiskvinnslunni tækifæri til að afla á sumarvertíðinni nægilegs fjár til skólans næsta vetur, en aðrir þraukuðu lengur og unnu jafnt sumarvertíðir sem vetrarvertíðir og færðu sig jafnvel milli plássa, frá Eyjum á Eskifjörð og frá Grindavík á Suðureyri. Allt í senn í von um meiri vinnu, meiri pening og meira fjör.

Á sýningunni Verbúðarlíf sem opnuð verður í Minjasafninu 1. nóvember, fá gestir að skyggnast inn í herbergi á verbúð. Í herberginu er verbúðalífi þessa tíma gerð skil, annars vegar með myndum og texta og hins vegar með hálftíma langri kvikmynd og jafnlöngum útvarpsþætti.

Benný Sif Ísleifsdóttir, Fríða Björk Ólafsdóttir og Vala Smáradóttir sáu um gerð sýningarinnar undir merkjum Spor – menningarmiðlunar. Sýningin er farandsýning sem hefur verið sett upp í Hús sjávarklasans í Reykjavík, Gamla sjúkrahúsinu á Ísafirði og Duus safnhúsi í Reykjanesbæ 

Í tilefni opnunarinnar verður aðgangur að safninu ókeypis á opnunardaginn og safnið opið til kl. 19:00.

Síðustu fréttir

Gripir fjallkonunnar aftur á heimaslóð
11. júní 2024
Sýningin Landnámskonan var formlega opnuð í Minjasafni Austurlands 9. júní síðstliðinn að viðstöddu fjölmenni. Þar má sjá forngripi sem aldrei hafa verið sýndir áður opinberlega, m.a. gripi sem til...
Landnámskonan - sumarsýning Minjasafnsins
06. júní 2024
Konur eru viðfangsefni sumarsýninga þriggja safna í Múlaþingi sem opnaðar verða núna í júní. Á sýningu Minjasafnsins verður sjónum beint að landnámskounnni og þar verða m.a. sýndir forngripir sem a...
Safnasóknin á Austurlandi
02. maí 2024
FÍSOS, félag íslenskra safna og safnafólks, stendur um þessar mundir fyrir fundaröð um landið undir yfirskriftinni Safnasóknin. Fyrsti fundur sóknarinnar fór fram á Egilsstöðum á dögunum en þangað ...