Skip to main content

Viðbygging við Safnahúsið í sjónmáli

22. maí 2018

Ný burst mun rísa við safnahúsið á næstu árum samkvæmt samningi sem undirritaður var við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu í dag. Þá verður aðstaðan í Sláturhúsinu einnig bætt. 

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs undirrituðu samkomulagið sem felur í sér stofnframlag til byggingar menningarhúss á Egilsstöðum. Málið á rætur að rekja til ársins 1999 en þá ákvað þáverandi ríkisstjórn að fé skyldi lagt í menningarhús á Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Egilsstöðum og í Vestmannaeyjum. Uppbyggingu er enn ólokið á Egilsstöðum og Sauðárkróki. Upphaflegar hugmyndir gerðu ráð fyrir að nýtt menningar- og stjórnsýsluhús myndi rísa í miðbæ Egilsstaða en horfið var frá þeim hugmyndum þar sem ljóst þótti að mikill kostnaður hefði fallið á sveitarfélagið. Þess í stað var ákveðið að fara svipaða leið og gert var á Ísafirði en þar voru þrjú hús tekin undir starfsemi menningarhúss.

Samkomulagið gerir ráð fyrir að stofnframlaginu verði varið til uppbyggingar menningarhúss í Sláturhúsinu sem verði gert að fjölnota menningarhúsi sem rúma skuli m.a. sviðslistir, tónlist, sýningar og vinnustofur. Einnig verði reist ný burst við Safnahúsið, líkt og ráð var fyrir gert í upprunalegum teikningum, sem verði til að bæta aðstöðu fyrir safnkost og sýningar auk aðstöðu fyrir fræði- og rannsóknarstörf. Markmið samkomulagsins er að framangreindar byggingar verði ekki einungis vettvangur menningar- og safnastarfsemi á Fljótsdalshéraði heldur að þær gegni einnig lykilhlutverki sem slíkar á Austurlandi.

Síðustu fréttir

Gripir fjallkonunnar aftur á heimaslóð
11. júní 2024
Sýningin Landnámskonan var formlega opnuð í Minjasafni Austurlands 9. júní síðstliðinn að viðstöddu fjölmenni. Þar má sjá forngripi sem aldrei hafa verið sýndir áður opinberlega, m.a. gripi sem til...
Landnámskonan - sumarsýning Minjasafnsins
06. júní 2024
Konur eru viðfangsefni sumarsýninga þriggja safna í Múlaþingi sem opnaðar verða núna í júní. Á sýningu Minjasafnsins verður sjónum beint að landnámskounnni og þar verða m.a. sýndir forngripir sem a...
Safnasóknin á Austurlandi
02. maí 2024
FÍSOS, félag íslenskra safna og safnafólks, stendur um þessar mundir fyrir fundaröð um landið undir yfirskriftinni Safnasóknin. Fyrsti fundur sóknarinnar fór fram á Egilsstöðum á dögunum en þangað ...