Skip to main content

Hvatningarverðlaun Haukssjóðs afhent

28. maí 2018

Haukssjóður, minningarsjóður um Hauk Stefánsson, listmálara, veitti á dögunum nemendum sem útskrifuðust af listnámsbraut Menntaskólans á Egilsstöðum hvatningarverðlaun sjóðsins.

Haukur Stefánsson fæddist árið 1901 á Rjúpnafelli í Vopnafirði. Ungur sigldi hann með móður sinni til Vesturheims og eyddi þar uppvaxtarárum sínum og stundaði myndlistarnám í Winnipeg og Chicago. Árið 1932 flutti hann aftur heim til Íslands ásamt eiginkonu sinni, Ástríði Jósefsdóttur sem hann hafði kynnst þegar hann heimsótti föðurlandið árið 1930 í tilefni Alþingishátíðarinnar. Þau hjón settust að á Akureyri þar sem hann lagði stund á húsamálun og teiknikennslu auk listmálunnar. Haukur lést árið 1953.

Árið 1996 stofnaði fjölskylda Hauks svokallaðan Haukssjóð sem er ætlað að efla myndlist á Austurlandi með viðurkenningum og bókagjöfum og voru forstöðumenn Minjasafns Austurlands og Bókasafns Héraðbúa skipaðir umsjónarmenn sjóðsins. Í samræmi við markmið sjóðsins var ákveðið að gefa nemendum sem útskrifast af listnámsbraut Menntaskólans á Egilsstöðum eintök af bókinni Haukur Stefánsson sem gefin var út í tengslum við sýningu á verkum hans í Listasafninu á Akureyri. Gjöfin er hugsuð sem hvatning til nemendanna til að halda áfram göngu eftir stígum listarinnar.

Síðastliðinn laugardag úrskrifuðust fjórir nemendur af listnámsbraut M.E., þau Aron Steinn Halldórsson, Korbrún Drífa Eiríksdóttir, Sigríður Hlíðkvist G. Kröyer og Stefán Númi Stefánsson. Fulltrúar Haukssjóðs óska þeim og öðrum nýstúdendum til hamingju með áfangann. 

Mynd: Útskriftarnemar vorið 2018, www.me.is

Síðustu fréttir

Gripir fjallkonunnar aftur á heimaslóð
11. júní 2024
Sýningin Landnámskonan var formlega opnuð í Minjasafni Austurlands 9. júní síðstliðinn að viðstöddu fjölmenni. Þar má sjá forngripi sem aldrei hafa verið sýndir áður opinberlega, m.a. gripi sem til...
Landnámskonan - sumarsýning Minjasafnsins
06. júní 2024
Konur eru viðfangsefni sumarsýninga þriggja safna í Múlaþingi sem opnaðar verða núna í júní. Á sýningu Minjasafnsins verður sjónum beint að landnámskounnni og þar verða m.a. sýndir forngripir sem a...
Safnasóknin á Austurlandi
02. maí 2024
FÍSOS, félag íslenskra safna og safnafólks, stendur um þessar mundir fyrir fundaröð um landið undir yfirskriftinni Safnasóknin. Fyrsti fundur sóknarinnar fór fram á Egilsstöðum á dögunum en þangað ...