Skip to main content

Fyrirlestur og sýningaropnun

18. október 2019

Eftirlýstir Íslendingar á 17. og 18 öld er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í Safnahúsinu 30. október næstkomandi. 

Sýningin samanstendur af 30 teikningum nemenda á teiknibraut við Myndlistaskólann í Reykjavík. Teikningarnar voru unnar upp úr lýsingum á eftirlýstu fólki sem birtust í Alþingisbókum Íslands frá miðri 17. öld og undir lok 18. aldar.

Á þessum tíma voru ekki aðrar leiðir færar til að lýsa eftir strokufólki og sakamönnum en að setja saman kjarnyrtar lýsingar á útliti þeirra sem síðan bárust manna á milli. Nú hafa nemar Myndlistarskólans í Reykjavík dregið upp myndir af þessu misindisfólki fyrri tíma og þannig opnað glugga að þessum samfélagskima fortíðarinnar.

Verkefnið er samstarfsverkefni skólans og Daníels G. Daníelssonar sagnfræðings og er sprottið upp úr rannsóknum Daníels fyrir verkefnið ,,Fötlun fyrir tíma fötlunar“. 

Sýningin hefur verið sett upp víða um land, m.a. í Háskóla Íslands, Minjasafninu á Akureyri og Sagnheimum í Vestmannaeyjum. Nú er komið að Safnahúsinu á Egilsstöðum og verður sýningin formlega opnuð miðvikudaginn 30. október, á fyrsta degi byggðahátíðarinnar Daga myrkurs. Við opnunina mun Daníel fjalla um um rannsóknir sínar á efninu og meðal annars draga fram í dagsljósið nokkra eftirlýsta Austfirðinga fyrri tíma.

Viðburðurinn er samstarfsverkefni Minjasafns Austurlands, Bókasafns Héraðsbúa og Héraðsskjalasafns Austfirðinga og er styrkt af Alcoa Fjarðaáli.

Aðgangur ókeypis, allir velkomnir.

Síðustu fréttir

Gripir fjallkonunnar aftur á heimaslóð
11. júní 2024
Sýningin Landnámskonan var formlega opnuð í Minjasafni Austurlands 9. júní síðstliðinn að viðstöddu fjölmenni. Þar má sjá forngripi sem aldrei hafa verið sýndir áður opinberlega, m.a. gripi sem til...
Landnámskonan - sumarsýning Minjasafnsins
06. júní 2024
Konur eru viðfangsefni sumarsýninga þriggja safna í Múlaþingi sem opnaðar verða núna í júní. Á sýningu Minjasafnsins verður sjónum beint að landnámskounnni og þar verða m.a. sýndir forngripir sem a...
Safnasóknin á Austurlandi
02. maí 2024
FÍSOS, félag íslenskra safna og safnafólks, stendur um þessar mundir fyrir fundaröð um landið undir yfirskriftinni Safnasóknin. Fyrsti fundur sóknarinnar fór fram á Egilsstöðum á dögunum en þangað ...