Skip to main content

Kjarval - Gripirnir úr bókinni

03. apríl 2020

Í dag opnaði Minjasafn Austurlands nýja vefsýningu á Sarpi. Sýningin ber yfirskriftin Kjarval - Gripirnir úr bókinni.

Á síðasta ári kom bókin Kjarval, málarinn sem fór sínar eigin leiðir, út hjá Forlaginu. Þar segir Margrét Tryggvadóttir sögu Jóhannesar Sveinssonar Kjarval, eins ástsælasta listamanns þjóðarinnar á heillandi og aðgengilegan hátt og er bókinni ekki síst beint að börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda m.a. af Kjarval og samferðafólki hans, af málverkum eftir hann og síðast en ekki síst af munum sem voru í eigu hans en eru nú varðveittir á Minjasafni Austurlands.

Minjasafnið hefur nú opnað vefsýningu á Sarpi með gripum úr bókinni. Þar gefst almenningi kostur á að skoða ljósmyndir af gripunum og lesa sér til um þá. Þessir hlutir láta ekki allir mikið yfir sér og eru eins mismunandi og þeir eru margir. Allir eiga þeir það þó sameiginlegt að vera hluti af sögu og arfleifð listamannsins og vitna um persónuleika hans, forgangsröðun og lífstíl.

Við hvetjum sýningargesti til að setjast niður við tölvuna með bókina við höndina, skoða hana samhliða sýningunni og reyna að finna alla gripina á síðum bókarinnar. Einnig hafa þrír auka gripir sem ekki eru í bókinni laumað sér með á sýninguna. Getur þú fundið þá?

Fyrir áhugasama skal tekið fram að Minjasafn Austurlands varðveitir mun fleiri gripi úr eigu Kjarvals en þá sem birtust í bókinni. Myndir og upplýsingar um þá eru einnig aðgengilegar á Sarpi, sjá hér.

Hér má síðan lesa umfjöllun Lestrarklefans um bókina. 

 

 

 

 

Síðustu fréttir

Gripir fjallkonunnar aftur á heimaslóð
11. júní 2024
Sýningin Landnámskonan var formlega opnuð í Minjasafni Austurlands 9. júní síðstliðinn að viðstöddu fjölmenni. Þar má sjá forngripi sem aldrei hafa verið sýndir áður opinberlega, m.a. gripi sem til...
Landnámskonan - sumarsýning Minjasafnsins
06. júní 2024
Konur eru viðfangsefni sumarsýninga þriggja safna í Múlaþingi sem opnaðar verða núna í júní. Á sýningu Minjasafnsins verður sjónum beint að landnámskounnni og þar verða m.a. sýndir forngripir sem a...
Safnasóknin á Austurlandi
02. maí 2024
FÍSOS, félag íslenskra safna og safnafólks, stendur um þessar mundir fyrir fundaröð um landið undir yfirskriftinni Safnasóknin. Fyrsti fundur sóknarinnar fór fram á Egilsstöðum á dögunum en þangað ...