Skip to main content

Hverjar hafa verið fjallkonur?

11. júní 2020

Engin formleg hátíðarhöld verða á Fljótsdalshéraði í ár vegna kórónaveirufaraldursins. Það þýðir jafnframt að fjallkonan mun ekki stíga á svið og flytja viðstöddum ljóð. 

Minjasafn Austurlands varðveitir kyrtilbúninginn sem fjallkonan á Fljótsdalshéraði klæðist á þjóðhátíðardaginn. Kyrtilinn gaf kvenfélagið Bláklukka Egilsstaðabæ árið 1997 í tilefni af 50 ára afmæli sveitarfélagsins. Búningurinn var sniðinn af Láru Elísdóttur klæðskera; Margrét Björgvinsdóttir saumaði hann og bróderaði mynstrið; Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir orkeraði blúndur í hálsmál og framan á ermar og Helga Þórarinsdóttir saumaði höfuðbúnaðinn.

23 konur hafa klæðast búningnum í gegnum tíðina og þannig átt þátt í að ljá samkomunni hátíðlegum blæ. Okkur langar að taka saman hvaða konur það eru sem hafa brugðið sér í hlutverk fjallkonunnar og leitum aðstoðar ykkar. Eftir því sem við komumst næst er listinn eitthvað á þessa leið en ekki er ólíklegt að þarna hafi einhverjar villur slæðast með. Ef þið getið fyllt inn í eyðurnar eða leiðrétt villur megið þið gjarnan senda okkur tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða skrifa okkur skilaboð á Facebook. Eins þætti okkur gaman að fá myndir af fjallkonum fyrri ára ef þær eru til.

Fjallkonur frá árinu 1997:

1997: Edda Sigfúsdóttir
1998:
1999: Gyða Þorbjörg Guttormsdóttir
2000: Fanney Ingadóttir
2001: Auður Vala Gunnarsdóttir
2002: Ruth Magnúsdóttir
2003: Hulda Elisabeth Daníelsdóttir
2004: Stefanía Jóhanna Valdimarsdóttir
2005: Anna Dóra Helgadóttir
2006: Halldóra Malín Pétursdóttir (eða árið 2007)
2007: Anna Alexandersdóttir (eða árið 2006)
2008: Edda Óttarsdóttir
2009: Guðlaug Ólafsdóttir
2010: Karen Erla Erlingsdóttir
2011: Sigþrúður Sigurðardóttir
2012: Jóney Jónsdóttir
2013: Stefanía Malen Stefánsdóttir
2014: Maríanna Jóhannsdóttir
2015: Bryndís Fiona Ford
2016: Guðrún Ragna Einarsdóttir
2017: Alda Björg Lárusdóttir
2018: Katrín Högnadóttir
2019: María Veigsdóttir

(ATH: Listinn hefur verið uppfærður eftir  því sem nýjar upplýsingar hafa borist)

Við minnum á að þó engin formlega hátíðarhöld verði á Fljótsdalshéraði á þjóðhátíðardaginn ætti engum að þurfa að leiðast því opnaðar verða sýningar bæði í Safnahúsinu og Sláturhúsinu. Nánar um það hér

Síðustu fréttir

Gripir fjallkonunnar aftur á heimaslóð
11. júní 2024
Sýningin Landnámskonan var formlega opnuð í Minjasafni Austurlands 9. júní síðstliðinn að viðstöddu fjölmenni. Þar má sjá forngripi sem aldrei hafa verið sýndir áður opinberlega, m.a. gripi sem til...
Landnámskonan - sumarsýning Minjasafnsins
06. júní 2024
Konur eru viðfangsefni sumarsýninga þriggja safna í Múlaþingi sem opnaðar verða núna í júní. Á sýningu Minjasafnsins verður sjónum beint að landnámskounnni og þar verða m.a. sýndir forngripir sem a...
Safnasóknin á Austurlandi
02. maí 2024
FÍSOS, félag íslenskra safna og safnafólks, stendur um þessar mundir fyrir fundaröð um landið undir yfirskriftinni Safnasóknin. Fyrsti fundur sóknarinnar fór fram á Egilsstöðum á dögunum en þangað ...