Skip to main content

Skessur sem éta karla - mannát og feminismi

14. júní 2021

Sumarsýning Minjasafnsins, Skessur sem éta karla, verður opnuð á þjóðhátíðardaginn. 

Sýningin er afrakstur rannsókna Dagrúnar Óskar Jónsdóttir þjóðfræðings sem hefur rannsakað mannát í íslenskum þjóðsögum. Á sýningunni vinnur Dagrún með hvernig mannátið birtist í þjóðsögunum og hvað það getur sagt okkur um samfélagið sem sögurnar tilheyra. Í rannsóknum sínum fléttar hún saman þjóðsögum og nútíma hugmyndum um feminisma og bregður þannig ljósi á nýjar hliðar bæði á þjóðsögunum og ójafnrétti kynjanna. "Þjóðsagnir endurspegla á vissan hátt hugmyndaheim og heimsmynd þeirra sem þeim safna og þær skrifað. Tröllskessur ráða ríkjum í tröllaheiminum og í sögum af mannáti eru það nánast alltaf tröllskessur sem éta mennska karlmenn. Það voru aðallega karlar sem söfnuðu, skrifuðu og gáfu út þjóðsagnaefni og hafa fræðimenn velt því fyrir sér hvort þessi birtingarmynd kvenna sem éta karla geti endurspeglað á einhvern hátt ótta karla við að missa völd sín yfir konunum" segir Dagrún. Niðurstöðum sínum miðlar Dagrún á veggspjöldum sem eru fagurlega myndskreytt með vatnslitamyndum Sunnevu Guðrúnar Þórðardóttur. 

Sýningin hefur verið sett upp víða um land, m.a. á Ísafirði, Hólmavík, Akureyri og Reykjavík. Hún verður á neðstu hæð Safnahússins og mun standa til haustsins. Á þjóðarhátíðardaginn verður opið hús hjá Minjasafninu og frítt inn á alla sýningar. 

Sumarsýning Minjasafnsins, Skessur sem éta karla, verður opnuð á þjóðhátíðardaginn. 

Síðustu fréttir

Gripir fjallkonunnar aftur á heimaslóð
11. júní 2024
Sýningin Landnámskonan var formlega opnuð í Minjasafni Austurlands 9. júní síðstliðinn að viðstöddu fjölmenni. Þar má sjá forngripi sem aldrei hafa verið sýndir áður opinberlega, m.a. gripi sem til...
Landnámskonan - sumarsýning Minjasafnsins
06. júní 2024
Konur eru viðfangsefni sumarsýninga þriggja safna í Múlaþingi sem opnaðar verða núna í júní. Á sýningu Minjasafnsins verður sjónum beint að landnámskounnni og þar verða m.a. sýndir forngripir sem a...
Safnasóknin á Austurlandi
02. maí 2024
FÍSOS, félag íslenskra safna og safnafólks, stendur um þessar mundir fyrir fundaröð um landið undir yfirskriftinni Safnasóknin. Fyrsti fundur sóknarinnar fór fram á Egilsstöðum á dögunum en þangað ...