Skip to main content

Gripir fjallkonunnar aftur á heimaslóð

11. júní 2024

Sýningin Landnámskonan var formlega opnuð í Minjasafni Austurlands 9. júní síðstliðinn að viðstöddu fjölmenni. Þar má sjá forngripi sem aldrei hafa verið sýndir áður opinberlega, m.a. gripi sem tilheyrðu fjallkonunni svokölluðu sem fannst á Vestdalsheiði árið 2004. Sýningin er auk þess hluti af sýningarröð þriggja safna á Austurlandi sem öll beina sjónum sínum að konum á sumarsýningum sínum í ár. 

Tvær ríkulega búnar landnámskonur skipa heiðurssess á sýningu Minjasafnsins, annars vegar höfðingjakonan sem hvíldi í einu kumlinu sem grafið var upp í Firði á Seyðisfirði árið 2021 og hins vegar fjallkonan dularfulla sem fannst í hellisskúta á Vestdalsheiði upp af Seyðisfirði árið 2004. Bæði kumlin í Firði og líkamsleifar fjallkonunnar eru frá því um 950 og því ljóst að hinar látnu hafa verið uppi á sama tíma. Á sýningunni eru niðurstöður rannsókna á þessum fornleifafundum nýttar til að beina sjónum að konum á þessum tíma, lífi þeirra og störfum.

Auk fróðleiks um þessa fornleifafundi og rannsóknir á þeim eru til sýnis gripir, annars vegar frá Firði og hins vegar frá fjallkonunni á Vestdalsheiði. Þessir gripir hafa ekki áður verið sýndir almenningi og hér er því um stóran viðburð að ræða. 

Sýningin er samstarfsverkefni Minjasafns Austurlands, Antikva, Rannsóknarseturs HÍ á Austurlandi og Þjóðminjasafns Íslands. Sýningar höfundur er Rúna K. Tetzschner en auk hennar voru í sýningarnefnd þær Ragnheiður Traustadóttir, Rannveig Þórhallsdóttir og Elsa Guðný Björgvinsdóttir. Um hönnun og uppsetningu sá Hanna Chriestel Sigurkarlsdóttir og grafísk hönnun var í höndum Ingva Arnar Þorsteinssonar. 

Sýningin er auk þess hluti af sýningaröð þriggja safna á Austurlandi sem ber yfirskriftina Konur / Women. Auk Minjasafnsins Austurlands beina Tækniminjasafn Austurland og Héraðsskjalasafn Austfirðinga sjónum sínum að konum á sumarsýningum sínum. Á sýningu Tækniminjasafnsins er dregin upp mynd af störfum kvenna á Seyðisfirði um aldamótin 1900 með áherslu á reynsluheim þeirra og framlag til atvinnulífsins; á Héraðsskjalasafninu verður sögð saga Margrétar Sigfúsdóttur, 20. aldar verkakonu, kennara og skálds í Fljótsdal. 

 

Mynd: Aðstandendur sýningarinnar á sýningaropnun. Frá vinstri: Rúna K. Tetzschner, Hanna Christel Sigurkarlsdóttir, Elsa Guðný Björgvinsdóttir, Rannveig Þórhallsdóttir og Ingvi Örn Þorsteinsson. Á myndina vantar Ragnheiði Traustadóttur. 

2024 landnamskonan nefnd

Síðustu fréttir

Gripir fjallkonunnar aftur á heimaslóð
11. júní 2024
Sýningin Landnámskonan var formlega opnuð í Minjasafni Austurlands 9. júní síðstliðinn að viðstöddu fjölmenni. Þar má sjá forngripi sem aldrei hafa verið sýndir áður opinberlega, m.a. gripi sem til...
Landnámskonan - sumarsýning Minjasafnsins
06. júní 2024
Konur eru viðfangsefni sumarsýninga þriggja safna í Múlaþingi sem opnaðar verða núna í júní. Á sýningu Minjasafnsins verður sjónum beint að landnámskounnni og þar verða m.a. sýndir forngripir sem a...
Safnasóknin á Austurlandi
02. maí 2024
FÍSOS, félag íslenskra safna og safnafólks, stendur um þessar mundir fyrir fundaröð um landið undir yfirskriftinni Safnasóknin. Fyrsti fundur sóknarinnar fór fram á Egilsstöðum á dögunum en þangað ...