Skip to main content

Staða safnstjóra laus til umsóknar.

02. júlí 2024

Minjasafn Austurlands á Egilsstöðum auglýsir stöðu safnstjóra lausa til umsóknar. Við leitum að drífandi, sjálfstæðum, hugmyndaríkum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á sögu og menningararfi svæðisins. 

Helstu verkefni:

Safnstjóri ber ábyrgð á faglegu starfi safnsins (s.s. söfnun, skráningu, varðveislu, rannsóknum, miðlun og fræðslu), daglegri starfsemi, rekstri, starfsmannamálum og markaðs- og kynningarmálum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði safnafræði, sagnfræði, þjóðfræði eða menningarmiðlunar.
  • Reynsla af safnastarfi er kostur.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði og þekking á fleiri tungumálum er kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði.
  • Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði.

Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí 2024
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2024.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Umsóknir skulu sendar á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og þeim skal fylgja starfsferilsskrá, upplýsingar um menntun og kynningarbréf sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.

Nánari upplýsingar veitir Elsa Guðný Björgvinsdóttir, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og 867-3225

Síðustu fréttir

Gripir fjallkonunnar aftur á heimaslóð
11. júní 2024
Sýningin Landnámskonan var formlega opnuð í Minjasafni Austurlands 9. júní síðstliðinn að viðstöddu fjölmenni. Þar má sjá forngripi sem aldrei hafa verið sýndir áður opinberlega, m.a. gripi sem til...
Landnámskonan - sumarsýning Minjasafnsins
06. júní 2024
Konur eru viðfangsefni sumarsýninga þriggja safna í Múlaþingi sem opnaðar verða núna í júní. Á sýningu Minjasafnsins verður sjónum beint að landnámskounnni og þar verða m.a. sýndir forngripir sem a...
Safnasóknin á Austurlandi
02. maí 2024
FÍSOS, félag íslenskra safna og safnafólks, stendur um þessar mundir fyrir fundaröð um landið undir yfirskriftinni Safnasóknin. Fyrsti fundur sóknarinnar fór fram á Egilsstöðum á dögunum en þangað ...