Fyrri sýningar
Minningar um torfhús
Sýningin Minningar um torfhús var í sett upp á neðstu hæð Safnahússins í janúar 2017. Á sýningunni voru 25 ljósmyndir sem franski fornleifafræðingurinn Sandra Coullenot tók af gömlum byggingum vítt og breitt um Ísland. Ljósmyndirnar voru hluti af doktorsverkefni Söndru en í rannsóknum sínum skoðaði hún m.a. hvort og hvernig torfhús hafa haft áhrif á íslenska sagnahefð og notaði til þess bæði aðferðir þjóðfræði og fornleifafræði.
Markmið sýningarinnar var að vekja upp minningar og hugrenningar sem sýningargestir tengdu við torfhús. Sérstakur minningarkassi var á sýningunni og voru gestir hvattir til að skrifa hugrenningar sínar á miða sem hægt er að stinga í kassann.
Sýningin var sett upp í samstarfi við söfnin í Safnahúsinu og Gunnarsstofnun en Sandra dvaldi í gestaíbúðinni á Skriðuklaustri í byrjun árs 2017.
Festum þráðinn
Sýningin Festum þráðinn - samræður um útsaum spor fyrir spor var opnuð í Minjasafninu 2. nóvember 2016. Þar voru til sýnis útsaumuð verk 10 kvenna, fimm frá Austurlandi og fimm frá Vesterålen í Noregi. Allar eru konurnar á aldrinum 67- 95 ára og eiga það sameiginlegt að hafa stundað útsaum frá unga aldri. Sýningin er hluti af rannsókn norsku listakonunnar Ingrid Larssen á útsaumshefðum beggja svæða. Afrakstur rannsókna sinna gaf hún út í bók í samstarfi við Minjasafnið. Bókin er samnefnd sýningunni og er til sýnis og sölu á Minjasafninu. Í tengslum við sýninguna stóð Minjasafnið fyrir útsaumskaffi þar sem Guðrún Sigurðardóttir, handmenntakennari og þátttakandi í verkefninu, kynnti mismunandi útsaumsaðferðir og leyfði gestum að spreyta sig. Nánari upplýsingar um sýninguna og rannsókn Ingridar er að finna hér.
Sýningin stóð fram að jólum og var eftir það sett upp í Sortland Museum í Vesterålen í Noregi.
Fjöllistamaður í fjallasal
Sumarsýning Minjasafnsins árið 2016 var samstarfsverkefni safnsins, Héraðsskjalasafns Austfirðinga og Menningarmiðstöðvar Fljótsdalshéraðs. Sýningin bar heitið Fjöllistamaður í Fjallasal og var tileinkuð alþýðulistamanninum Jón A. Stefánssyni frá Möðrudal sem var mikill hagleiks- og listamaður, málaði málverk, skar út í tré, spilaði á orgel, samdi lög og söng. Frægastur var hann þó fyrir að hafa byggt Möðrudalskirkju og málað altaristöfluna sem í henni er en kirkjuna byggði hann til minningar um konu sína, Þórunni Oddsen. Sýningin var sett upp í Sláturhúsinu og þar voru til sýnis málverk og listmundir eftir Jón auk þess sem hægt var að skoða skjöl tengd honum og hlusta á viðtöl við hann og upptökur á söng hans. Í tengslum við sýninguna gafst einstakt tækifæri til að safna saman upplýsingum um verk Jóns sem til eru víða. Frétt um opnun sýningarinnar má finna hér.
20 ár í Safnahúsi
Í tilefni af því að 20 ár voru liðin frá því að Minjasafnið flutti í Safnahúsið á Egilsstöðum var sumarsýningu safnsins árið 2016 ætlað að sýna þá fjölbreytni sem einkennir safnkost safnsins. Safnverðir litu yfir geymslurnar og tíndu til nokkra muni sem tilheyra þeim tíu söfnunarflokkum sem skilgreindir eru í safnastefnu Minjasafnsins. Gripirnir voru á öllum aldri og ástand þeirra mismunandi en allir geyma þeir mikilvægar sögur um líf og störf fólks á Austurlandi fyrr og nú. Meðal þess sem sjá mátti á sýningunni var hökull sem sagan segir að hafi komið frá álfum, vídalínspostilla frá 18. öld, skólabjalla frá Alþýðuskólanum á Eiðum, óþekktir forngripir, brauðmót og spáspil.
Söfnunarflokkar Minjasafns Austurlands eru: Heimilishald, skólahald, atvinnuhættir, félagsleg uppbygging, dægradvöl, hús- og híbýlahættir, fornmunir, ljósmyndir, bækur og skjöl.